Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Félagsstarf - hjartsláttur samtakanna

 

SÁÁ eru Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann og eru að verða þrítug. Aðalmarkmið samtakanna er að sjá til þess að alkóhólistar, vímuefnafíklar og aðstandendur þeirra eigi ávalt völ á bestu fáanlegri sjúkrameðferð og endurhæfingu.

 

Til þess að ná þessu markmiði þurfa samtökin að vera stór og öflug svo mark sé á okkur tekið og þá fást einnig tekjur af félagsgjöldum sem renna til meðferðarstarfsins. Uppbygging félagsins er með þeim hætti að alltaf er tryggt að félagsmenn eiga greiðan aðgang að upplýsingum og geta haft bein áhrif á stjórnun félagsins í gegn um aðalfund. Þar geta allir haft sömu áhrif og hver félagsmaður fer með eitt atkvæði. Þessi lýðræðislega uppbygging hefur tryggt okkur velfarnað í þrjátíu ár og skapað mikil verðmæti í eignum, en það sem mest er um vert er að yfir 19.000 íslendingar hafa komið til okkar í meðferð og stór meirihluti hlotið bata með gríðarlegum þjóðfélagslegum ávinningi og auknum lífsgæðum fyrir sig og sína.

 

Félagsstarf SÁÁ snýst einnig um að skapa heibrigða umgjörð utan um afþreyingu og skemmtanir. Margar skemmtanir sem fólk sækir eru tengdar neyslu og oft eru þar einstaklingar bæði undir áhrifum af áfengi og vímuefnum. Þar kemur einnig til lífsmynstur og félagslegur þrýstingur á að taka þátt í neyslunni. Þeir sem hafa lent í vanda vegna áfengis- og vímuefnaneyslu eru oft félagslega einangraðir vegna þess að bata þeirra er hætta búin með slíku skemmtanahaldi og oft eru þessar skemmtanir þær einu sem í boði eru.  Algeng ástæða fyrir falli er skortur á afþreyingu og leiði sem kallar á áhættuhegðun s.s. að fara á skemmtanir með vímuðu fólki. Eins kunna margir þessara einstaklinga ekki að skemmta sér án áfengis og hafa skerta félagslega hæfni.

 

Hið margháttaða félagsstarf sem unnið er innan SÁÁ miðar að því að til staðar sé raunverulegur valkostur um skemmtanir fyrir þá sem vilja skemmta sér án áfengis og vímuefna. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir nýliða (þá sem nýlega hafa lokið meðferð).

 

Félagsstarf SÁÁ hefur verið mjög öflugt. Efnt hefur verið til dansleikja, félagsvistar, bridge, fluguhnýtinga auk tóleika og marháttaðra viðburða. Einnig má telja árshátíð, útihátíðhátíð, þorrablót og jólaskemmtun.

Fjöldi þeirra sem sótt hafa viðburði í þessum flokki hefur verið jafn og góður.

 

SÁÁ heldur einnig út starfi sem heitir "Ungt fólk í SÁÁ". Það felst í því skapa félagslega aðstöðu fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri sem lokið hefur meðferð. Haldnir eru hópfundir í göngudeild SÁÁ með ráðgjafa tvisvar í viku þar sem félagsstarf hópsins er skipulagt. Með tilkomu unglingadeildarinnar að Vogi er enn mikilvægara að geta boðið upp félagslega aðstoð að meðferð lokinni sem sniðin er að þörfum unga fólksins.

 

Í hverri viku eru skipulögð starfsemi á vegum SÁÁ fyrir hina fjölmörgu markhópa starfsins: Ungt fólk, Kjarnakonur, Heiðursmenn, endurkomu karla og konur, aðstandendur, fjölskylduskemmtanir, barnaskemmtanir o.s.fr.v. Í nýja húsinu okkar Von er góð aðstaða til tónleikahalds og samkoma og þar er einnig rekið kaffihús og matsala sem þegar orðið vinsælt meðal félagsmanna.

 

Að ofansögðu er ljóst að leitast er við hjá SÁÁ að mæta þörfum sem flestra fyrir vímulausar skemmtanir um leið og félagsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í lýðræðislegu félagi sem sannarlega vinnur að mikilsverðum almannahagsmunum.

 

 

 

 

Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar þessum spurningum samviskusamlega.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Hugleiðing dagsins
Leiðarljós í dagsins önn frá AA-félögum til AA-félaga.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.