5. febrúar 2010
Kraftaverkið haldi áfram

SÁÁ eru eitt af því fáa, sem Ísland gerir betur en önnur lönd. Frábær meðferð samtakanna á áfengissjúklingum hefur skilað þúsundum glataðra sálna inn í samfélagið að nýju. Þau hafa gert þessum þúsundum kleift að taka þátt í samfélaginu sem virkir skattborgarar fremur en óvirkir velferðarþegar. Við þurfum að styðja SÁÁ til að halda áfram þessu linnulausa kraftaverki, sem staðið hefur áratugi.
Jónas Kristjánsson blaðamaður