Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?
 

 

Pistlar

Senda á Facebook
8. mars 2010

Mannlegur niðurskurður

Lárus H. Blöndal

 

Áhrif efnahagskreppunnar hérlendis gætir víða með margvíslegum afleiðingum og þá helst miklum fjármagnsskorti. Áætlaður niðurskurður í heilbrigðiskerfinu stendur fyrir dyrum. Augljóst markmið niðurskurðar er að draga úr útgjöldum ríkisins. Við flóknar aðstæður er reynt að hugsa einfalt. Lausnarorðið er flatur niðurskurður. Tilveran væri þægilegri og viðráðanlegri ef hún væri einföld; helst svört-hvít, en ekki óendanlega litrík og flókin. Vissulega þarf að endurskoða hvaðeina í efnahagskreppu. Á bak við alla skoðun og allar ákvarðanir eru einstaklingar. Allar ákvarðanir hafa áhrif á einstaklinga. Samfélög samanstanda af venjulegu fólki eins og þér og mér. Fólki með sammannlega eiginleika, þarfir og viðbrögð. Viðbrögð okkar við t.d. áföllum eru mjög keimlík. Við eigum meira sameiginlegt, en það sem skilur okkur að. Við státum okkur af því að vera rökvísar vitsmunaverur. Staðreyndin er sú að við erum fyrst og fremst breyskar tilfinningaverur með viðhorf, hugsanir og viðbrögð í takt við þá staðreynd.

 

Mismunandi viðhorf til sjúkdóma

 

Þetta skiptir máli við ákvarðanatöku um niðurskurð. Dreifing fjármagns til mismunandi þjónustueininga heilbrigðiskerfisins er viðkvæmt mál þegar sverfir að. Minna fjármagn til heilbrigðisþjónustu hlýtur að skerða þjónustu. Þrátt fyrir góðan vilja og ásetning er ómögulegt líta framhjá þeirri staðreynd að sparnaður á einum stað veldur iðulega meiri kostnaði á öðrum sviðum. Þetta vitum við öll.

 

Persónuleg tengsl þeirra sem bera ábyrgð á niðurskurði við ákveðna sjúkdóma geta skipt máli. Mismundandi viðhorf ríkja til sjúkdóma í samfélaginu. Sumir sjúkdómar njóta ákveðins skilnings og samúðar meðal þjóðarinnar, meðan minna umburðarlyndis gætir gagnvart þolendum annarra sjúkdóma. Því miður leiðum við oft ekki mikið hugann að þessu. Það er oft ekki fyrr en við sjálf eða einhver okkur tengdur veikist, að staða sjúkdómsins verður okkur ljós.

 

Sjúkdómurinn alkóhólismi hefur átt undir högg að sækja. Alkóhólismi hefur átt erfitt uppdráttar vegna þröngsýni, þekkingarleysis og fordóma samtíðarinnar þrátt fyrir að áralanga baráttu og ómetanlegt starf SÁÁ. Áfengisneysla er viðkennd og útbreidd meðal almennings. Langstærsti hluti áfengisneytenda lenda í ekki í neinum teljandi vandræðum með eigin neyslu. Slíkt algengi og viðkenning á áfengisneyslunni á sinn þátt í að móta neikvæða afstöðu og viðhorf samtímans til alkóhólismans. Eðli alkóhólistans er að ánetjast áfengis- eða vímuefnum á þann hátt að mannlegir eiginleikar og reisn mega sín lítils.

 

Áhrif á alla, ekki síst börnin

 

Í dag vitum við að um ólæknandi, illvígan, stigversnandi sjúkdóm er að ræða sem hefur áhrif á allt líf þess sjúka og fjölskyldu hans, ekki síst börnin. Við vitum líka að enginn ætlar sér að verða alkóhólisti og allir bera með sér þá innri mynd að vilja vera gott foreldri. Við vitum auk þess að enginn er verri einstaklingur við það eitt að vera haldin langvinnum sjúkdómi, þó hann hafi með áfengis- og vímuefnaneyslu að gera. Fyrir tilstuðlan SÁÁ eru í dag þúsundir óvirkir alkóhólistar á Íslandi, sem hafa öðlast hafa nýtt líf svo og fjölskyldur þeirra.  Komið hefur verið í veg fyrir mikinn mannlegan harm og fjárhagslegur svo og ýmis annar ávinningur fyrir samfélagið er ómældur. Hver sá alkóhólisti sem nær vímulausu lífi, blæs von í brjóst þeim sem enn eru þarna úti í glímu sinni við ofurefli fíknisjúkdómsins.

 

Undanfarin misseri hefur SÁÁ staðið fyrir sálfræðiþjónustu við börn alkóhólista og aðstandendur þeirra. Sú staðreynd er þar með viðurkennd að staða barna sem alast upp við alkóhólisma er þeim erfið og getur haft verulegar afleiðingar fyrir líf þeirra. Talið er að þjónusta sem þessi geti haft verulegt forvarnargildi um leið og unnið er með skilning barnsins á eigin stöðu og stöðu foreldra sinna með meiru. Börn í vanda hafa ekki sterka málssvara í okkar samfélagi.

 

Lárus H. Blöndal, SÁÁ-félagi, sálfræðingur og foreldri

 

 

sjá SÁÁ blaðið 2009. 3.tbl

 

 

meira
Til baka...

 

SOGS-spurningalistinn telur 17 spurningar og gefur skýra mynd af því hvort spilavandamál er á ferðinni...
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
13

14
20

21
27

28
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Viðtal við Þórarin Tyrfingsson yfirlækni á Vogi (DVD)
Tæpitungulaust viðtal við Þórarin Tyrfingsson yfirlækni á Vogi

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.