Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Pistlar

Senda á Facebook
18. mars 2010

SÁÁ í vanda – sjúklingar í vanda

Jón T. Héðinsson læknir

 

Jón T. Héðinsson læknir hefur starfað á bráðdeildum Landspítala, geðdeilda og á heilsugæslustöðum á Íslandi sem og í Noregi. Hann veit af eigin reynslu niðurskurður á fé til SÁÁ er tilfærsla á vanda til annarra og dýrari heilbrigðisstofnana.

 

Hjá Samtökum áhugafólks um áfengisvandann, SÁÁ, hefur 10% sparnaði þegar verið náð á undanförnu ári. Nú stendur SÁÁ enn frammi fyrir miklum niðurskurði á fé frá Ríkinu og þeirri staðreynd að ekki hefur verið staðið við gerða þjónustusamninga. Einnig missir SÁÁ af tugmilljóna tekjum frá sjálfstæðum stuðningsaðilum vegna kreppunnar, umfram niðurskurði ríkisins. 

 

Undirritaður er læknir og ég hef starfað mikið með sjúklinga undanfarin 20 ár. Ég hef starfað á bráðadeildum Landspítala Háskólasjúkrahúss, geðdeildum og á heilsugæslustöðvum víða um landið og í Noregi.

 

Áfengi og heilsufarsvandamál

 

Það er sannreynt að áfengi og vímuefni valda beint og óbeint mörgum líkamlegum og geðrænum heilbrigðisvandamálum. Beina birtingarmyndin er m.a. ölæði, eitranir, slys, barsmíðar, sýkingar, óttaslegnir ættingjar og ótímabær dauðsföll. 

 

Óbeint má einnig rekja hluta líkamlegra og geðrænna heilbrigðisvandamála til misnotkunar áfengis. Þar á meðal eru: Brjóstverkir, hjartsláttartruflanir, magasár, brisbólgur, lifrarbólgur, vítamín- og næringarskortur, bráð versnun á slæmum öndunarfærasjúkdóm, endurteknar sýkingar, roði og þroti í andliti, bjúgur á fótum og víðar, svefnleysi, almenn þreyta, kvíði, þunglyndi, oflæti, ranghugmyndir og ofbeldishegðun. 

 

Hversu hátt hlutfall áfengis- og vímuefna tengdra og afleiddra heilsufarsvandamála er af öllum heilbrigðisvandamálum er ekki vísindalega sannreynt og rannsókna er þörf á þessu sviði. Það er hins vegar reynsla mín og fleiri lækna, að hlutfallið sé umtalsvert.

 

Kostnaðarauki að skera niður

 

Áfengis- og vímuefnamisnotkun fer ekki minnkandi á Íslandi.

 

Með óbreyttri niðurskurðarstefnu og vanefndum ríkisins gagnvart SÁÁ mun þurfa að draga mikið úr og leggja jafnvel niður starfsemi sjúkrastofnunarinnar Vogs, sem er hjartað í starfsemi SÁÁ. Þar með flyttist meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga á aðrar og dýrari heilbrigðisstofnanir, sem hefðu sennilega ekki undan. Þá þyrftu enn fleiri en nú er meðhöndlunar við vegna afleiddra heilbrigðisvanda, með enn auknu álagi á aðra hluta heilbrigðiskerfisins.

 

Ef svo fer er líklegur hundruð milljóna króna kostnaðarauki fyrir íslenska heilbrigðiskerfið og einnig félagsmálakerfið. 

 

Mestu máli skiptir þó, að ef SÁÁ dregur enn frekar úr starfsemi sinni, þá eru líkur á verri líðan og jafnvel dauðsföllum áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandenda þeirra. 

 

Jón T. Héðinsson læknir

 

 

 

meira
Til baka...

 

SMAST-greining, Short Michican Alcoholism Screening Test, telur 13 spurningar sem sem hjálpa þér að ákvarða hvort áfengisneyslan er í lagi.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Sjúkdómur áfengis- og vímuefnafíknar (DVD)
Fyrirlestur með Þórarni Tyrfingssyni yfirlækni á Vogi.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.