|
|
 |
Skráning félaga - SÁÁ
|
|
Úr lögum SÁÁ
"3. gr. Sá sem óskar inngöngu í samtökin skal koma á framfæri inntökubeiðni á skrifstofu samtakanna. Telst viðkomandi félagi í samtökunum 7 sólahringum eftir að inntökubeiðni berst samtökunum."
SÁÁ — Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann — eru breið og öflug félagssamtök sem starfa að réttindamálum áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandenda þeirra. Samtökin reka spítala og meðferðarstöðvar, sambýli og fjölskyldumeðferð, forvarnir og félagsstarf.
Með því að gerast félagi í SÁÁ styður fólk við alla þætti starfseminnar. Ekki aðeins með greiðslu félagsgjalda heldur með því að láta sig þessa starfsemi varða, fylgjast með henni og taka þátt í uppbyggingu hennar.
Félagsgjald er 6000 krónur á ári. Hægt er að greiða félagsgjaldið með greiðslukorti og brjóta upphæðina niður í 500 króna greiðslur hvern mánuð. Félagi sem hefur greiðslur félagsgjald verður fullgildir félagi sjö dögum síðar og hefur atkvæðarétt á félagsfundum.
Hægt er að stryðja enn betur við bak SÁÁ með því að greiða tvöföld styrktargjöld — krónur 1000 á mánuði — eða þreföld styrktargöld — krónur 1500 á mánuði.
|
|
 |
|
|
Nýir félagar í SÁÁ fá senda Skáldagjöf, fallegt og eigulegt safn ljóða sem 63 íslensk skáld gáfu samtökunum. | |
Gerast félagi |
|
|
 |

Nora í 60 MINUTES
Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.
|