Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?
 

 

SÁÁ - Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann

 

 

 

Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann eru landsamtök sem vinna að áfengis og vímuefnavörnum um allt land og veita öllum landsmönnum þjónustu. Höfuðstöðvarnar eru í Reykjavík en á Akureyri er einnig miðstöð.


Samtökin eru fjölmenn almannasamtök. Öllum ágóða af starfsemi samtakanna og eignum er varið til baráttunnar gegn ofnotkun vímuefna. Séu samtökin lögð niður renna eignir þeirra til sambærilegra samtaka eða starfsemi. 

 

Byggir upp fólk


Vímuefnavandinn sem við er að eiga er mikill og vaxandi. Árangur af starfsemi samtakanna er margvíslegur og mikill en kemur einna skýrast fram þegar ungur einstaklingur sem er byrgði á þjóðfélaginu og veldur nánustu aðstandendum sínum miklum áhyggjum, sorg, reiði og skömm nær bata og verður nýtur þjóðfélagsþegn fjölskyldu sinni til gleði og styrkta.


Samtökin eru grasrótarsamtök. Þau voru stofnuð af vímuefnafíklum sem höfðu fengið lækningu erlendis og vildu færa nýjar hugmyndir um vandann og vímuefnameðferð heim. Allar götur síðan hafa flestir þeir sem eru við stjórnvöl samtakanna og margir starfsmenn kynnst vandanum af eigin raun annað hvort sem aðstandendur eða fíklar og engin kemur að samtökunum nema sá sem hefur mikinn áhuga á vandamálinu.


Samtökin eru sterk og þróttmikil og hafa haft víðtæk áhrif í þjóðfélaginu. Þau hafa staðist tímans tönn, voru stofnuð í október 1977 og urðu því 25 ára árið 2002. SÁÁ eru mjög fjölmenn samtök og margir hafa komið inn á félagaskrá samtakanna í gegnum árin og nú eru félagar og styrktafélagar 15.000. Samtökin standa á sterkum fjárhagslegum grunni og njóta mikillar velvildar og stuðnings meðal almennings og trausts stjórnvalda.


Með stuðningi almennings


Þó að þeir sem vinni fyrir Samtökin séu kappsamir er eitt megin markmið samtakanna að nota rök og staðreyndir í baráttu sinni og vera opin fyrir öllum hugsanlegum aðferðum sem gagnast geta fíklum og aðstandendum þeirra í baráttu sinni fyrir betra lífi. Innan raða samtakanna eru bæði bindindismenn og þeir sem vilja meira frjálsræði.


SÁÁ leggur mesta áherslu á fjölbreytta meðferð sem byggir á nýrri vísindalegri þekkingu í læknisfræði, sálarfræði og félagsvísindum. Samtökin telja að engin ein meðferð dugi öllum sem eiga við vímuefnavanda að stríða og bjóða sjúklingum upp á marga valkosti í meðferðinni. Þau telja að forvarnir verði ekki alltaf aðgreindar frá meðferðinni og forvarnarstarf sé oft á tíðum fólgið í meðferð ýmissa vandamála sem einstaklingar og fjölskyldur eiga við að stríða. Samtökin hafa ráðið til sín reynslumikið og vel menntað heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur að vímuefnameðferðinni sem SÁÁ telur bestu aðferðina við núverandi aðstæður til að draga úr ofnotkun vímuefna, ofbeldi og afbrotum.


Samtökin leggja mikla áherslu á forvarnir og vilja taka heilstætt á vímuefnavandanum með mikilli fræðslu og skynsamlegri löggjöf og reglugerðum sem vernda þá sem minna mega sín án þess að misbjóða hinum.

 

 

TWEAK-spurningalistinn er 5 spurninga skimunarpróf einkum ætlaður konum - þó sérstaklega barnshafandi konum. Smelltu hér fyrir neðan til að taka prófið.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
13

14
20

21
27

28
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Lífsviðhorf Bills
..fjallað er um lífsviðhorf AA-samtakanna frá fjölmörgum sjónarhornum

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.