
Tillögurnar sem hér koma miðast bæði við úrbætur fyrir þann hóp sem fjallað er um í þessari samantekt og eru einnig hugsaðar til þess að hægt sé að grípa fyrr og með áhrifaríkari hætti inn í sjúkdómsþróun þeirra sjúklinga sem eru á sömu braut.
Leggja þarf fé til viðhaldsmeðferðarinnar á Vogi og byggja þá starfsemi upp með mun meiri samvinnu en nú er við Landlæknisembættið og í áframhaldandi samvinnu við Geðdeild Landspítalans.
Koma þarf upp sambýli fyrir þennan sjúklingahóp í næsta nágrenni við Sjúkrahúsið Vog. Þar þarf að vera meira aðhald og félagslegur stuðningur en nú er veittur við sambýli SÁÁ. Vegna nálægðarinnar við Sjúkrahúsið Vog gæti starfsfólk þar veitt sambýlinu nauðsynlega þjónustu. Til að sinna sjúklingunum í þessu sambýli, þeim sem eru með geðraskanir og 18 ára og eldri á Sjúkrahúsinu Vogi þarf að ráða geðlækni í hálft starf við Sjúkrahúsið Vog. Félagsráðgjafa þarf einnig að ráða til starfa við sambýlið og Vog.
Nauðsynlegt er að veita veikustu sjúklingunum sem leita til SÁÁ langtíma inniliggjandi meðferð. Þó að vísir sé að slíku nú þegar þarf betri aðstöðu til að lengja inniliggjandi meðferðina upp í nokkra mánuði ef þörf er á. Góð aðstaða er fyrir konurnar á Vík og einungis þarf að fjölga ráðgjöfum þar um einn. Aðstöðuna fyrir karlana þarf að bæta á Staðarfelli svo hægt sé að fjölga sjúklingum um 10 og ráðgjöfum um tvo.
Óskað er eftir eftirfarandi stuðningi Heilbrigðisráðuneytisins og Landlæknisembættisins
- Stuðning við viðhaldsmeðferðina
- Stuðning við sambýlisrekstur við sjúkrahúsið Vog með aukinni þjónustu við skjólstæðingana frá því sem nú er.
- Stuðning við langtímameðferð fyrir konur og karla.