
Þjónustusamningur og sjálfsaflafé
Rekstri og fjárhag SÁÁ er skipt niður í tvo megin hluta. Annarsvegar SÁÁ-sjúkrarekstur (kt:671077-0169) og hins vegar SÁÁ-samtök (kt:521095-2459). Báðar þessar rekstrareiningar eru reknar og þeim stjórnað samkvæmt lögum SÁÁ og af sömu stjórn. Á árinu 2000 ákvað stjórn SÁÁ að skipta rekstri ennfrekar niður. Þannig var ákveðið að bæta við rekstrareiningu sem ber nafnið SÁÁ-fasteignir (kt:490101-3140) og er hlutverk hennar að reka fasteignir samtakanna og munu því SÁÁ-samtök og SÁÁ-sjúkrarekstur leigja af SÁÁ-fasteignir. Tilgangur þessarar ákvörðunar er fyrst og fremst til að sýna betur raunverulegan húsnæðiskostnað hverrar rekstrareiningar.
SÁÁ-sjúkrarekstur er fjármagnaður með þjónustsamningi við íslenska ríkið og útseldri þjónustu. Halli hefur verið af þessum rekstri sem hefur verið greiddur upp af heildarsamtökunum, SÁÁ-samtök. Sjúkrastarfsemin er rekin samkvæmt heilbrigðislögum og fellur undir endur-skoðun Ríkisendurskoðunar og er hluti af ríkisreikningi.
Sjá gildandi þjónustusamninga:
SÁÁ-samtök eru fjármögnuð af eigin fjáröflunum, útseldri þjónustu, félagsgjöldum, styrkjum og ýmsum öðrum framlögum. Allar fasteignir fyrir starfsmi SÁÁ eru í eigu SÁÁ-samtök og allar langtímaskuldir, veð og tryggingar eru skráðar á samtökin. Allar byggingaframkvæmdir eru á vegum og ábyrgð samtakanna. Rekstur samtakanna er endurskoðaður af löggiltum endurskoðendum auk kjörinna skoðunarmanna stjórnar.
Fjármálum og fjáröflunum SÁÁ er stjórnað af af skrifstofu samtakanna. Mikill vöxtur hefur verið í heildarrekstri SÁÁ og framkvæmdir og fjárfestingar verið verulegar svo sem:
1991 Meðferðarheimilið Vík byggt
1993 Áfangaheimilið Miklubraut 1 keypt og stofnsett
1992 Félagsheimilið Úlfaldinn stofnsett
1995 Húsnæði fyrir áfangaheimilið Fjóluna keypt
1996 Meðferðarheimilið Staðarfelli endurbyggt
1996 Lóð við Efstaleiti í Reykjavík
1995 Forvarnadeild stofnsett
1996 Skrifstofur fluttar og innréttaðar í Ármúla 18
1997 Hafinn undirbúningur að viðbyggingum við Vog
1997 Keypt íbúðarhúsnæði fyrir starfsemi SÁÁ á Akureyri
1998 Byggingarframkvæmdir hafnar við Vog
2000 Unglingadeild við Vog opnur í ársbyrjun
2000 Göngudeild við Vog tekur til starfa
2005 Byggingarframkvæmdir á lóð samtakanna við Efstaleiti
2006 Efstaleiti 7 tekið í notkun í nóvember