11. nóvember 2009 10:30
Kjarnakonur halda fund í kvöld

Kjarnakonur SÁÁ eru hópur kvenna sem eru óvirkir alkahólistar og aðstandendur alkohólista. Kjarnakonur hittast vikulega, á miðvikudögum í Von Efstaleiti 7 kl. 20:00 – 21:00.
Gestur hjá Kjarnakonum í kvöld kl. 20 – 21 í Von, verður Ingveldur Ýr söngkona. Allar konur velkomnar.
Megin tilgangur með starfinu er að styðja við konur sem vilja fræðast um sjúkdóminn alkahólisma og áhrif hans á fjölskylduna. Áhersla er lögð á að efla umræðu og vinna gegn fordómum með því að fræðast um alkahólisma og ljá sjúkdómnum andlit. Sérstöl áhersla er lögð á bataleiðir. Skiptast konur á að deila reynslu sinni af því hvernigþærhafa náð bata frá alkóhólisma eða meðvirkni og hvernig þær viðhalda batanum.