22. janúar 2010 09:14
Þjónustan á Vogi minnkar og veikustu sjúklingarnir fara verst út úr því

Fjárlög ríkisstjórnarinnar voru samþykkt rétt fyrir áramót og þá varð endanlega ljóst að framlög til sjúkrareksturs SÁÁ munu minnka um 13 % á 2 árum. Þetta mun þýða að spara þarf um 70 milljónir króna á árinu 2010.
Slíkt verður ekki gert nema með því að skerða þjónustuna á Sjúkrahúsinu Vogi um mikinn mun. Starfsfólk SÁÁ hefur þegar hafist handa við að breyta starfseminni. Megin breytingarnar sem sjúklingarnir munu finna er að biðlistar munu lengjast og erfiðara verður fyrir endurkomufólk að komast á Vog. Sjúklingar á Reykjavíkursvæðinu sem hafa verið á Vogi á árinu 2009 og 2008 eiga að snúa sér til göngudeildar SÁÁ í Von við Efstaleiti til að fá aðstoð við að útbúa beiðni um vistun en hinir til sinna heilsugæslulækna.
Fólk sem er að leita sér meðferðar í fyrsta sinni eða var á Sjúkrahúsinu Vogi fyrir meira en tveimur árum á að snúa sér beint til sjúkrahússins.