Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Eðli meðferðar og hugmyndagrundvöllur

 

Frá upphafi hefur SÁÁ litið svo á að áfengis- og vímuefnafíkn er sjúkdómur.  Hlutverk samtakanna er að vinna að því að í landinu sé besta fáanlega meðferð fyrir vímuefnafíkla og aðstandendur þeirra.

 

Samtökin reka sérhæfðar sjúkrastofnanir og ráða fagfólk til starfa. Hugmyndafræði þessa fagfólks er fyrst og fremst sú að standa föstum fótum í læknisfræði, sálarfræði og félagsvísindum og samtvinna þetta þrennt með það að markmiði að búa til heilstæða áfengis- og vímuefnameðferð sem býður upp á fjölbreytta möguleika og kemur til móts við sem flesta.

 

Á þennan hátt hafa samtökin reynt að sameina heilbrigðisþjónustu og félagslega endurhæfingu og aðstoð. Hugmyndagrundvöllurinn er fyrst og fremst vísindalegar rannsóknir á sviði heilbrigðisþjónustu, sálarfræði og félagsvísinda.

 

Starfsmenn samtakanna hafa sótt ráðstefnur erlendis bæði í Evrópu og Ameríku og fylgst vel með nýjungum.  Þannig fara hjúkrunarfræðingar á ráðstefnur á hverju ári og læknar samtakanna sækja a.m.k. 3-4 ráðstefnur sem fjalla um mismunandi hliðar fíkniefnaneyslu og mismunandi meðferðaraðferðir. Áfengisráðgjafar samtakanna hafa einnig reglulega sótt ráðstefnur sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar standa fyrir á hverju ári.

 

Með hverjum einstaklingi sem leitar sér aðstoðar hjá SÁÁ er reynt að setja upp raunhæf markmið við hæfi hvers og eins og síðan unnið að þeim.  Í flestum tilvikum er unnið að varanlegu bindindi með sjúklingum.  Þó geta markmiðin orðið önnur þegar það á við t.d. að draga úr neyslunni eða viðhaldsmeðferð eins og tíðkast nú með ópíumfíkn.

 

Misskilnings hefur oft gætt þegar fólk reynir að finna meðferðinni hjá SÁÁ stað undir einni hugmyndafræði eða meðferðaraðferð. Sumir hafa viljað kenna meðferðina við Minnesota method sem er í raun engin eina sérstök meðferðarhugmynd heldur samsafn meðferðaraðferða sem tvinnaðar eru saman. Segja má að sjúkrastofnanir SÁÁ noti í vímuefnameðferð sinni, lyfjameðferð, geðmeðferð, hugræna atferlismeðferð auk aðferða sem heyra sérstaklega til vímuefnameðferðar. Starfsmennirnir vísi sjúklingum sínum áfram í geðmeðferð og sálfræðimeðferð samhliða eða eftir vímuefnameðferðinni ef þörf er á. Jafnframt þessu kynna sjúkrastofnanirnar  sjúklingum sínum AA og NA samtökin og hvetja þá til þátttöku í störfum þeirra að meðferð lokinni.

 

 

SOGS-spurningalistinn telur 17 spurningar og gefur skýra mynd af því hvort spilavandamál er á ferðinni...
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Aldrei aftur meðvirkni
Bók um hvernig tilfinningasambönd og tengsl taka á sig skrumskælda mynd í skugga fíknar.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.