Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Inngangur

Inngangur

 

SÁÁ eru 26 ára gömul samtök sem reka ekki einungis heilbrigðisstofnanir heldur veita öllum landsmönnum mikla og margvíslega þjónustu. Þó að starfsemin beinist fyrst og fremst að vímuefnafíklum og aðstandendum þeirra njóta miklu fleiri þjónustunnar beint eða óbeint. Erfitt er að gera sér grein fyrir hversu margir hafa samband við starfsmenn samtakanna til að leita eftir upplýsingum eða þjónustu á hverju ári en ekki er ólíklegt að þeir séu um 10.000. Samtökin sjá um kennslu, standa fyrir fræðsluerindum og kynningarfundum víða um land auk þess sem margur nemandinn kemur í heimsókn á sjúkrastofnanirnar til að kynna sér starfsemina eða að leita sér upplýsinga.

 

Vaxandi fjöldi fólks fær upplýsingar og fræðslu með því að heimsækja vefsetur samtakanna http://www.saa.is. Mikill fjöldi fólks hefur samband símleiðis og sú þjónusta sem starfsmenn samtakanna veita í gegnum síma er mikil að vöxtum og ekki einungis bundin við venjulegan vinnudag. Starfsfólk okkar er á vöktum allan sólahringinn á sjúkrastofnununum og oft hefur fólk í vanda samband á kvöldin, á nóttu og um helgar. Slík símtöl þar sem fólk með brýnan vanda fær einhverja úrlausn sinna mála skipta þúsundum á ári.

 

Þjónustan sem SÁÁ veitir vímuefnafíklum og aðstandendum þeirra flokkast ekki öll undir sjúkrarekstur samtakanna. Fyrir utan meðferðarþjónustu hjálpa samtökin fíklum og aðstandendum þeirra að aðlaga sig þjóðfélaginu að meðferð lokinni með margvíslegum hætti. Í þessu skini hafa samtökin rekið sambýli fyrir vímuefnafíkla sem eru að koma úr meðferð og staðið fyrir ýmsum félagsstarfi með skjólstæðingum sínum. Sérstaklega hefur verið lögð áhersla á að styðja við yngstu skjólstæðingana sem eru um 20 ára og yngri. Farið er með þau einum fimm sinnum á ári í ferðalög.

 

Í þessari greinargerð er einungis skýrt frá þeirri starfsemi SÁÁ sem tilheyrir sjúkrastarfseminni.

 

 

SÁÁ rekur sex sjúkrastofnanir

 

  • Sjúkrahúsið Vogur
  • Endurhæfingarheimilið að Staðarfelli
  • Endurhæfingarheimilið að Vík
  • Göngudeild SÁÁ á Akureyri
  • Göngudeild SÁÁ í Síðumúla 3 í Reykjavík
  • Göngudeild við Sjúkrahúsið

 

 

 

 

Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar þessum spurningum samviskusamlega.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Leiðir til bata. Reynsluspor AL-Anon, erfðavenjur og þjónustuhugtök 1-3
Fyrstu þrjú sporin. Þessi vinnubók er sett saman af reynslu, styrk og vonum hundruð Al-Anon félaga

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.