SÁÁ, Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandan byggðu snemma upp alhliða meðferðarþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra sem bauð upp á marga valkosti. Með árunum hefur meðferðin orðið æ fjölbreyttari. Sjúkrastofnanir SÁÁ og reyndar sambýlin líka vinna saman sem ein heild og bjóða sjúklingunum mismunandi meðferð eftir því hver meðferðarþörf þeirra er og hvaða tækifæri sjúklingar hafa. Þannig getur meðferðin verið allt frá stuttu inngripi á göngudeild upp í að vera viðamikil meðferð á Sjúkrahúsinu Vogi og öðru hvoru endurhæfingar-heimilinu. Þó meðferðin á stofnununum sé oftast rúmur mánuður getur hún orðið allt að einu ár í sumum tilvikum. Eftir stofnanameðferðina tekur við meðferð og stuðningur frá göngudeildum sem er mis langur frá þrem mánuði í eitt ár. Margir sjúklingar dvelja á sambýlum SÁÁ um einhvern tíma að stofnanameðferðinni lokinni.
Að lokinni meðferð á sjúkrastofnunum SÁÁ mæta sjúklingar gefst sjúklingum kostur á eftirfylgni vikulega á göngudeild SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri en þó mislengi.
Í endurhæfingunni á Staðarfelli og Vík er boðið upp á mismunandi valkosti, í fyrsta lagi almenna meðferð og er eftirfylgnin á göngudeild einu sinni í viku í 3 mánuði hið minnsta. Í öðru lagi er sérstök meðferð fyrir konur á Vík og þar er eftirfylgnin 2svar í viku fyrstu 3 mánuðina og síðan 9 mánuði til viðbótar þar sem sjúklingar mæta vikulega. Sama eftirfylgni er fyrir endurkomu karlmenn “Víkinga” sem útskrifast frá Staðarfelli.
Sjúklingar sem koma frá Vogi án þess að hafa farið á endurhæfingarheimilin fá mismunandi eftirfylgni og meðferð á göngudeild. Hluti sjúklinganna fer í endurhæfingar-meðferð sem tekur 4 mánuði. Fyrsta mánuðinn mæta sjúklingar 4x í viku í um 3 klukkustundir í hvert sinn og eftir það vikulega í 12 vikur. Hluti sjúklinganna mætir dagalega í stuðningshóp í 3 vikur og er síðan vísað á meðferðarúrræði sem hæfir hverjum og einum. Hluti sjúklinganna sem koma frá Vogi er ekki til samstarfs um frekari eftirfylgni eða hún er talin óþörf, þar sem sjúklingur hefur þéttan og góðan stuðning.
Vel er skráð hversu margir koma til viðtals á göngudeildir samtakanna eða til að þiggja aðra þjónustu og nákvæm sjúkraskráning er á sjúkrahúsinu Vogi og endurhæfingarheimilunum á Vík og Staðarfelli.
Sjúkrahúsið Vogur
Sjúkrahúsið Vogur stendur við Stórhöfða í Reykjavík fyrir botni Grafarvogs. Sjúkrahúsið var byggt á árunum 1982-1983 og sjúkrahúsrekstur hófs þar 28 des 1983.
Byggt var við sjúkrahúsið árið 1999 og í viðbyggingunum hafin rekstur unglingadeildar og göngudeildar. Sjúkrahúsið er nú um 3600 fermetrar að stærð og rúmar 64 sjúklinga. Þar starfa um 100 manns í 60 stöðugildum.
Allt frá upphafi hefur Sjúkrahúsið Vogur verið þungamiðjan í meðferðarstarfinu og þar byrja flestir vímuefnasjúklingarnir meðferðina og nær allir vímuefnasjúklingar sem leita sér meðferðar á Íslandi koma þar fyrr eða síðar. Allt frá fyrsta starfsári Vogs 1984 hefur þar verið stunduð nákvæm skráning og sjúkdómsgreining á vímuefnavanda þeirra einstaklinga sem þangað koma ár hvert. Notaðir hafa verið sömu staðlarnir við greininguna í þessi 16 ár sem gera tölulegu upplýsingarnar betur samanburðarhæfar frá ári til árs. Annað sem eykur á áræðanleikann við samanburðinn er að skráningin er einstaklingaskráning og á hverju ári er einstaklingur aldrei skráður nema einu sinni. Endurinnlagnir hafa því ekki áhrif á skráninguna.
Sjúkrahúsið Vogur er langumfangsmesta meðferðarstofnun landsins og svo
stór hluti vímuefnasjúklinga leitar þangað að sjúklingahópurinn á Vogi
endurspeglar mjög vel ástandið í vímuefnamálum hér á landi.
Tölur frá Vogi 2003
Á árinu 2003 innrituðust 2351 á Sjúkrahúsið Vog. Í 720 tilvika áttu konur í hlut eða í 30,8% tilvika. Innritanir karla voru 1599. Í 825 tilvikum voru þeir sem innrituðust 25 ára eða yngri eða í 35,1 % tilvika. Innritanir þeirra sem voru 55 ára eða eldri voru 222 eða 9,4 %. Meðalaldur þeirra sem innrituðust var 34,7 ár, kvennanna 34,6 ár og karlanna 34,8. Legudagar á Sjúkrahúsinu Vogi voru 24.080 og meðaldvöl þar 10,24 dagar þegar bæði er talinn komudagur og brottfarardagur. Konurnar dvöldust að meðaltali í 10,49 daga en karlarnir í 10,13 daga.
Þeir sem voru 19 ára eða yngri innrituðust 381 sinnum á Vog á árinu 2003 og hlutur þeirra í innritunum var 16,2 %. Þeir dvöldust að meðaltali 8,71 daga á Vogi.
Tölur frá Vogi 2002
Árið 2002 voru innritanir á Sjúkrahúsið Vog 2.340 og í 732 tilvika áttu konur í hlut eða í 31,3% tilvika. Innritanir karla voru 1608. Í 828 tilvikum voru þeir sem innrituðust 25 ára eða yngri eða í 35,4 % tilvika. Innritanir þeirra sem voru 55 ára eða eldri voru 207 eða 8,8 %. Meðalaldur þeirra sem innrituðust var 33,90 ár, kvennanna 33,11 ár og karlanna 34,26. Legudagar á Sjúkrahúsinu Vogi voru 23.357 og meðaldvöl þar 9,98 dagar þegar bæði er talinn komudagur og brottfarardagur. Konurnar dvöldust aðmeðaltali í 10,02 daga en karlarnir í 9,96 daga.
Þeir sem voru 19 ára eða yngri innrituðust 434 sinnum á Vog á árinu 2002og hlutur þeirra í innritunum var 18,54 %. Þeir dvöldust að meðaltali 8,92daga á Vogi.
Tölulegar upplýsingar frá öllum sjúkrastofnunum SÁÁ
|
Sjúkrastofnun |
Innritanir |
Legudagar |
Kostnaður á legudag |
Kostnaður á innritun |
Meðal lengd dvalar |
Fjöldi
sjúkrarúma |
|
Vogur |
2351 |
24.058 |
15.934 |
163.087 |
10,1 |
64 |
|
Vík |
310 |
7.464 |
8.246 |
198.564 |
19,6 |
30 |
|
Staðarfell |
380 |
10.430 |
6.144 |
168.647 |
27,4 |
34 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Alls |
3.041 |
41.952 |
12.133 |
|
|
128 |
|
Göngudeild |
Heimsóknir |
Fjöldi greiningar-viðtala |
Önnur viðtöl og heimsóknir |
Heimsóknir vegna meðferðar og námskeiða |
Heimsóknir vegna eftirfylgni |
Heimsóknir aðstandanda |
|
Við Vog |
3.889 |
1.830 |
380 |
0 |
1.015 |
664 |
|
Síðumúla |
15.396 |
2.101 |
876 |
6.788 |
4.399 |
1.232 |
|
Akureyri |
1.019 |
201 |
118 |
168 |
532 |
0 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Alls |
20.304 |
4.132 |
1.364 |
6.956 |
5.946 |
1.896 |