Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?
 

 

Lög félagsins

Lög SÁÁ

(Samþykkt á aðalfundi þann 21. júni 1991, með breytingum aðalfundar 23. maí 2001, (opna pdf fyrir prentun))

 

 

1. gr.
Nafn samtakanna er Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, skammstafað SÁÁ. Starfssvið samtakanna er landið allt og geta einstaklingar, félög og félagasamtök orðið félagar. Heimili samtakanna og varnarþing er í Reykjavík.

 

2. gr.
Tilgangur Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann er :

  1. Að útrýma vanþekkingu og fordómum á áfengisvandamálinu og hafa áhrif á almennings- álitið með fræðslu um eðli sjúkdómsins alkóhólisma.
  2. Að starfrækja afvötnunar- og endurhæfingarstöðvar fyrir alkóhólista og aðra vímuefnamisnotendur.
  3. Að starfrækja göngudeildarþjónustu fyrir alkóhólista og aðra vímuefnamisnotendur.
  4. Að starfrækja fræðslu og meðferð fyrir aðstandendur alkóhólista og annarra vímuefnamisnotenda.
  5. Að vinna að fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerðum sem og endurhæfingu hinna sjúku.
  6. Að styrkja til sérmenntunar starfsfólk til ofangreindrar starfsemi, svo og til annarra starfa málefninu viðkomandi.
  7. Að skipuleggja sjálfboðaliðastörf og afla fjár til reksturs samtakanna.
  8. Að afla og koma á framfæri til almennings upplýsingum um eðli og umfang þess vanda sem stafar af notkun áfengis og annarra vímuefna.
  9. Að leita samvinnu við og styrkja þá starfsemi, sem berst raunhæft við áfengis- og vímuefnavandann.

Framangreindum tilgangi hyggst félagið ná með því að sameina leika sem lærða til baráttu, sem byggð er á þekkingu. SÁÁ sem slíkt er ekki bindindisfélag og vill forðast boð og bönn og hverskonar sleggjudóma.

 

3. gr.
Sá sem óskar inngöngu í samtökin skal koma á framfæri inntökubeiðni á skrifstofu samtakanna. Telst viðkomandi félagi í samtökunum 7 sólahringum eftir að inntökubeiðni berst samtökunum.

 

4. gr
Tekjur samtakanna eru:

  1. Félagsgjöld.
  2. Opinber framlög og styrkir.
  3. Framlög félaga og einstaklinga.
  4. Fé sem aflað er með sérstökum fjáröflunaraðgerðum, svo sem happdrættum o.fl.

5. gr.
Aðalfund samtakanna skal halda fyrir 1. júlí ár hvert og skal hann boðaður með viku fyrirvara með auglýsingu í a.m.k. tveimur dagblöðum og tveimur útvarpsstöðvum. Aðalfundur er lögmætur ef rétt er til hans boðað. Á aðalfundi skulu þessi mál tekin til umræðu og afgreiðslu:

  1. Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi samtakanna á liðnu starfsári.
  2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og samþykktar.
  3. Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær.
  4. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og varaendurskoðenda.
  5. Tekin ákvörðun um félagsgjöld.
  6. Önnur mál.

6.gr.
Á fundum samtakanna hefur hver félagi eitt atkvæði, hvort heldur hann er einstaklingur eða félag.

 

7. gr.
Aðalstjórn samtakanna skipa 48 menn. Kjörtími stjórnarmanna er þrjú ár og skulu 16 kjörnir á hverjum aðalfundi auk 7 varamanna til eins árs. Endurkosning stjórnarmanna er heimil. Kjörgengir eru, auk einstaklinga sem aðild eiga að samtökunum, fyrirsvarsmenn félaga sem aðild eiga. Séu slíkir menn kjörnir í stjórnina sitja þeir út kjörtíma sinn þó þeir hætti sem fyrirsvarsmenn þess félags sem aðildina á að samtökunum. Ákvæði til bráðabirgða: Á aðalfundi SÁÁ árið 2001 skal kjósa 16 aðalmenn til þriggja ára. Einnig skal kjósa 4 aðalmenn til tveggja ára og aðra 4 aðalmenn til eins árs þannig að loknum kosningum skipi stjórnina 48 aðalmenn.


8. gr.
Framkvæmdastjórn skal skipuð 9 mönnum sem aðalstjórn kýs úr sínum hópi til eins árs á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund. Skal formaður kosinn sérstaklega og er hann jafnframt formaður aðalstjórnar, að öðru leyti skiptir framkvæmdastjórn með sér verkum. Framkvæmdastjórnarfundir teljast löglegir ef 5 framkvæmdastjórnarmenn mæta.


9. gr.
Fundi í aðalstjórn skal halda eftir þörfum en þó eigi sjaldnar en tvisvar milli aðalfunda. Framkvæmdastjórnin fer í umboði aðalstjórnar með vald hennar milli aðalstjórnarfunda. Hún kýs sér varaformann, ritara og gjaldkera á fyrsta fundi sínum. Hún skal leggja fyrir aðalstjórn til umræðu og ákvarðanatöku allar fyrirætlanir um meiriháttar fjárfestingu, breytingu á rekstri stofnana eða stofnsetningu nýrra stofnana, svo og ákvarðanatöku um stefnumótun í samskiptum við opinbera aðila ef þurfa þykir. Framkvæmdastjórnin sér um allar framkvæmdir og annast rekstur stofnana þeirra, er stofnað hefur verið til eða kunna að verða stofnsettar á vegum samtakanna og hefur úrskurðarvald í öllum málum er þær varða milli aðalstjórnarfunda. Hún ræður menn til að stjórna stofnunum samtakanna og sjá um rekstur þeirra og fjárhag sbr. 10. gr. Hún gerir skriflega samninga við starfsmenn þessa og setur þeim erindisbréf, sem hafa skal m.a. ákvæði um samþykki stjórnar fyrir öllum stærri framkvæmdum og fjárfestingu, sem ekki fellur undir daglegan rekstur.
Framkvæmdastjórnin skipuleggur og stjórnar fjáröflun samtakanna, hún skal í hvívetna gæta hagsmuna þeirra og kemur fram fyrir hönd þeirra út á við m.a. í öllum viðræðum og samningum við opinbera aðila.
Framkvæmdastjórn er heimilt að skipa nefndir sér til aðstoðar til að vinna að ákveðnum verkefnum í þágu samtakanna. Stofnanir og fjáröflunarleiðir samtakanna skulu hver um sig hafa sérstaka bókfærslu og reikningslega aðskilinn fjárhag.
Framkvæmdastjórn ræður framkvæmdastjóra fyrir samtökin og yfirlækni þeirra sjúkrastofnana, sem samtökin reka. Má sami maður gegna yfirlæknisstarfi þeirra allra. Ráðning yfirlæknis er vegna ákvæðis 3. mgr. 31. gr. laga nr. 59/1983 um heilbrigðisþjónustu háð samþykki stjórnar viðkomandi sjúkrastofnunar sbr. niðurlagsákvæði 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Framkvæmdastjórn setur þessum starfsmönnum erindisbréf, þar sem verksvið þeirra skal vera nákvæmlega skilgreint. Framkvæmdastjórn er heimilt að skipa framkvæmdaráð sem starfar í umboði hennar á milli funda.
Aðalstjórn er heimilt að ákveða stjórnarlaun formanns og stjórnarmanna í framkvæmdastjórn á fyrsta fundi eftir aðalfund.
Með samþykki aðalstjórnar er heimilt að stofna til sérstakra undirdeilda SÁÁ. Deildir SÁÁ geta kosið sér sérstakar stjórnir sem starfa undir yfirstjórn aðal- og framkvæmdastjórnar SÁÁ.


10. gr.
Við hverja sjúkrastofnun samtakanna (þ.m.t. göngudeild) skal starfa sérstök 5 manna sjúkrahússtjórn. Skal einn stjórnarmanna valinn af starfsmönnum viðkomandi sjúkrastofnunar, einn skal tilnefndur af heilbrigðistáðherra, en þrír kosnir af framkvæmdastjórn SÁÁ, (sbr. 2. mgr. 30. gr. l. 59/1983, sbr. 4. mgr. 24. gr. s.l.).
Sjúkrahússtjórn ræður hjúkrunarforstjóra þar sem því er að skipta. Ráðning rekstrarstjóra skv. 9. gr. skal vera háð samþykki viðkomandi sjúkrahússtjórnar. Stjórnin skal að öðru leyti annast daglegan rekstur viðkomandi sjúkrastofnunar innan þess fjárhagsramma sem framkvæmdastjórn hefur ákveðið.


11. gr.
Verði ágreiningur í framkvæmdastjórn er a.m.k. tveimur stjórnarmönnum heimilt að vísa ágreiningi til úrskurðar aðalstjórnar SÁÁ. Stjórnarfundir eru því aðeins lögmætir að framkvæmdastjórn sé skipuð 5 mönnum. Tólf aðalstjórnarmenn geta krafist fundar aðalstjórnar. Skal sú krafa vera skrifleg til formanns og tekið fram hvaða mál fundurinn eigi að fjalla um. Skal þess getið í dagskrá fundarins og skulu þau mál vera fyrstu mál á dagskrá. Til fundar aðalstjórnar skal boða bréflega með viku fyrirvara.


12. gr.
Endurskoðendur skulu vera tveir og jafnmargir til vara. Einnig skal löggiltur endurskoðandi endurskoða reikninga samtakanna og sjá um uppsetningu þeirra. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.


13. gr.
Lagabreytingar þurfa 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist framkvæmdastjórn 7 dögum fyrir aðalfund. Samtökunum verður ekki slitið nema á aðalfundi og skal þess getið í fundarboði ef til stendur að bera fram tillögu um slit samtakanna á fundinum. Fer um félagsslit sem lagabreytingar. Verði samtökin lögð niður skal afhenda eignir þeirra til annars félags sem vinnur að sama megintilgangi. Þarf tillaga um slíkt aðeins samþykki einfalds meirihluta á þeim fundi sem samþykkt hefur slit. Sé slíku félagi ekki til að dreifa, eða hljóti tillaga ekki samþykki, skal fela þriggja manna nefnd að taka ákvörðun um, hvernig eignum skuli best ráðstafað í þessum megintilgangi. Skal einn nefndarmanna kosinn á fundinum, annar tilnefndur af heilbrigðisráðherra og hinn þriðji tilkvaddur af borgardómaraembættinu í Reykjavík.


14. gr.
Með ákvæðum 1.-2. gr. og 13. gr. er fyrir því séð að samtökin telji sig undanþegin skyldu til að greiða tekjuskatt og eignarskatt skv. 5. tl. 4. gr. laga nr. 75/1981. Þá teljast framlög til samtakanna frádráttarbær frá skattgjaldstekjum sbr. 2. tl. E-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 75/1981 og 3. mgr. 1. töluliðar, 1. mgr. 31. gr. s.l., sbr. reglugerð nr. 748/1983.

 

 

TWEAK-spurningalistinn er 5 spurninga skimunarpróf einkum ætlaður konum - þó sérstaklega barnshafandi konum. Smelltu hér fyrir neðan til að taka prófið.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
13

14
20

21
27

28
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Aldrei aftur meðvirkni
Bók um hvernig tilfinningasambönd og tengsl taka á sig skrumskælda mynd í skugga fíknar.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.