Sjúkrahús

SÁÁ starfrækir Sjúkrahúsið Vog í Reykjavík sem var tekið í notkun árið 1984 og hefur fjöldi sjúklinga að undanförnu verið um 2000 á ári. Öll meðferð samtakanna hefst á sjúkrahúsinu Vogi. Gerðar eru læknisfræðilegar greiningar á öllum sjúklingum og þar með geðgreiningar. Aðkeyptar eru allar nauðsynlegar læknisrannsóknir og þau sérfræðiálit sem þörf er á bæði hvað varðar líkamlega heilsu og geðræn vandamál. Gerðar eru skimunarrannsóknir vegna kynsjúkdóma, alnæmis og lifrarbólgna og unglingar eru bólusettir við lifrarbólgu B. Allt þetta starf er unnið í náinni samvinnu við Húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans, Smitsjúkdómavarnir Landlæknisembættisins og Lyflækningadeildir Landspítala og Sjúkrahús Reykjavíkur. Auk þessa er góð samvinna við Geðdeild Landspítalans.
Á nýársdag árið 2000 var tekinn í notkun fyrsti áfanginn í nýbyggingu við sjúkrahúsið, sérstök deild handa áfengis- og vímuefnasjúkum ungmennum, og skömmu síðar bætist við ný bráðamóttaka og göngudeild við sjúkrahúsið.
Göngudeildir
Auk Sjúkrahússins Vogs rekur SÁÁ umfangsmikla starfsemi í Reykjavík. Göngudeild samtakanna er í Efstaleiti 7 en þar er eftirmeðferð fyrir sjúklinga og fræðslu- og upplýsingamiðlun. Samtökin reka eitt áfangaheimili í Reykjavík, við Miklubraut til að styðja sjúklinga sína á leið til bata og fullrar þjóðfélagslegrar þátttöku. Skrifstofa SÁÁ er í Efstaleiti.
Á Akureyri starfrækir SÁÁ göngudeild og upplýsingaþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra.
Eftirmeðferð og félagslegur stuðningur
Staðarfell í Dölum og Vík á Kjalarnesi eru eftirmeðferðarstöðvar SÁÁ og útskrifa á hverju ári um 800 sjúklinga samtals.
SÁÁ hefur í nokkur ár rekið sambýli fyrir karla og konur í Reykjavík og fyrir karla á Akureyri. Sambýlisrekstur á Akureyri hefur nú verið lagður niður. Allur þessi sambýlarekstur er tiltölulega nýr þáttur í starfi SÁÁ. Einstaklingarnir borga sjálfir fyrir vist í sambýlum. Félagsleg aðstoð sem þessi að meðferð lokinni bætir árangur meðferðarinnar verulega og er orðinn ómissandi þáttur í starfi SÁÁ.