Göngudeild Akureyri
Hofsbót 4, 600 Akureyri.
Sími: 530-7600, 462-7611
Opnunartími: Mán.- fös. kl. 9:00-17:00
Lokað í hádeginu frá kl.12:00-13.00
Dagskrárstjóri er Anna Hildur Guðmundsdóttir
Áfengis- eða vímuefnafíknir einstaklingar eru misjafnlega illa farnir vegna sjúkdómsins. Eiginleikar þeirra og félagslegar aðstæður eru jafn mismunandi og einstaklingarnir eru margir. Það gefur því auga leið að meðferðarþörf þessa fólks er mismunandi. Tækifærin og aðstaðan til að fara í meðferð og sækja hana er einnig breytileg. Málið verður enn flóknara þegar þess er gætt að samstarfsvilji vímuefnafíkilsins ræður oft meiru en meðferðarþörfin um það hvað hægt er að gera fyrir hann. Vegna allra þessara ástæðna þarf áfengis- og vímuefnameðferð að bjóða upp á mismunandi valkosti eða meðferðarúrræði til að koma til móts við mismunandi þarfir sjúklinganna, - finna þeim meðferð við hæfi og auka þannig meðferðarárangurinn.
Viðbúnaði á göngudeild má skipta í tvö stig
Fyrsta stigs viðbúnaður á göngudeild við Sjúkrahúsið Vog.
Þar eru læknar til staðar og stjórna meðferðinni um leið og fyrir hendi er hjúkrun, sálfræðiþjónusta og ráðgjafaþjónusta. Megin markmið sem unnið er að á slíkri göngudeild er greining og meðferð á fráhvörfum, geðrænum og líkamlegum fylgikvillum og sjúkdómum. Deildinni er einkum ætlað að fylgja eftir meðferð á Vogi og gera mögulegt að stytta dvöl þar.
Annars stigs viðbúnaður á göngudeild, göngudeildir í Reykjavík og á Akureyri.
Þar er til staðar ráðgjafaþjónusta sem unnin er undir faglegri stjórn lækna og ráðgjafar eiga þess kost að ráðfæra sig við lækna í daglegu starfi og vísa sjúklingum til annarra heilbrigðisstarfsmanna í samráði við þá ef þörf er á.
Smellið á dagskrá Göngudeildar Akureyri.