Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Meðferðarheimilið Staðarfelli

 

 

Meðferðarheimilið Staðarfelli
371 Búðardal
Sími: 530-7600, fax: 434-1308
Netfang: stadarfell@saa.is
Dagskrárstjóri er Gísli Stefánsson


Á Staðarfelli fer fram endurhæfing sjúklinga sem koma frá Sjúkrahúsinu Vogi. Þangað fara karlar til fjögurra vikna endurhæfingar og þiggja að þeirri dvöl lokinni stuðning frá göngudeild í nokkrar vikur. Á Staðarfelli fer einnig fram meðferð fyrir endurkomukarla sem felst í sérstakri meðferð í fjórar vikur á Staðarfelli og síðan stuðningi í göngudeild í eitt ár.


Meira en 20 ár

Það var árið 1980 að gengið var frá samningi á milli SÁÁ og þáverandi menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra um afnot SÁÁ af Staðarfelli. Þar hafði verið rekinn húsmæðraskóli í hálfa öld alveg fram til ársins 1977.

 

Samningur SÁÁ og ráðuneytanna var síðan framlengdur á nokkurra ára fresti en óvissa ríkti jafnan um framtíð Staðarfells sem eftirmeðferðarheimilis. Það var ekki fyrr en í apríl 1996 að fjórir ráðherrar og ábúandi Staðarfells undirrituðu samning við SÁÁ sem tryggði reksturinn til langframa. Með þeim samningi gat SÁÁ ennfremur ráðist í nauðsynlegar og löngu tímabærar viðgerðir á húsnæðinu. Frá fyrsta degi hefur hvert rúm verið skipað á Staðafelli. 

 

 

SOGS-spurningalistinn telur 17 spurningar og gefur skýra mynd af því hvort spilavandamál er á ferðinni...
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
11

12
18

19
25

26
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Viðtal við Þórarin Tyrfingsson yfirlækni á Vogi (DVD)
Tæpitungulaust viðtal við Þórarin Tyrfingsson yfirlækni á Vogi

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.