Fjölskylduhelgarmeðferð helgina 15. og 16. sept.
Fjölskylduhelgarmeðferð verður haldin helgina 15. og 16. september í Von, Efstaleiti 7. Meðferðin er ætluð aðstandendum fólks með fíknsjúkdóm. Meðferðin kostar 16.000 krónur og stendur frá klukkan 9:00-16:30 báða dagana.
Markmið meðferðarinnar er að auka þekkkingu þátttakenda á einkennum og áhrifum fíknsjúkdómsins á fjölskylduna og meðlimi hennar.
Fyrirlestrar í helgarmeðferðinni eru:
- Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn
- Hvernig meðvirkni breytir einstaklingum og fjölskyldum
- Óheppilegur stuðningur
- Sjálfsvirðingin
- Sameiginlegur bati fjölskyldunnar
Fjölskylduhelgarmeðferð er úrræði sem er í boði nokkrum sinnum á ári. Það er fyrst og fremst ætlað fólki sem býr utan höfuðborgarsvæðisins og öðrum sem eiga erfitt með að nýta sér fjögurra vikna kvöldmeðferðarnámskeiðin sem haldin eru í hverjum mánuði.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá ráðgjöfum SÁÁ á göngudeildinni í Von, Efstaleiti. Hægt er að panta tíma hjá þeim og/eða skrá sig í síma 530-7600.
Nánar um fjölskyldumeðferð og þjónustu SÁÁ við aðstandendur hér.