Könnun á verði fíkniefna „á götunni“
SÁÁ hefur allt frá byrjun árs 2000 kannað verðlag á ólöglegum vímuefnum „á götunni.“ Allir innritaðir sjúklingar, sem hafa heilsu til, taka þátt í könnun þar sem spurt er hve margir þeirra hafa keypt slík efni síðastliðnar tvær vikur, og hvað greiddu þeir fyrir efnin. Meðaltalsverð er reiknað i tugum króna.
Verðkannanir SÁÁ hafa frá upphafi verið gerðar með þessum sama. Þannig ættu þær að gefa glögga mynd af verðbreytingum á ólöglegum vímuefnum „á götunni” á þessu rúmlega fjórtán ára tímabili.
Niðurstöður kannananna frá upphafi er hægt að lesa í skjalinu hér að neðan.
Það sem vekur jafnan athygli er hve ólöglegi vímuefnamarkaðurinn virðist vera þróaður og stöðugur. Litlar sveiflur eru á verði og í raun er hægt að tala um að jafnvægi sé milli framboðs og eftirspurnar.