Fjölskyldumeðferð
Fjölskyldumeðferð
Þjónusta SÁÁ við fjölskyldur er ætluð aðstandendum fólks með fíknsjúkdóm

Fjölskyldumeðferð
Næsta fjölskyldumeðferð verður auglýst .
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 530-7600. Halldóra Jónasdóttir, áfengis- og vímuefnaráðgjafi, tekur við skráningum á dora@saa.is
Aðstandendur
Þjónusta SÁÁ við fjölskyldur er ætluð aðstandendum fólks með fíknsjúkdóm hvort sem einstaklingurinn hefur farið i meðferð eða ekki. Markmiðið er að auka þekkingu þátttakenda á einkennum fíknsjúkdómsins og áhrifum hans á fjölskylduna og meðlimi hennar.
Yfirlitssíða með fræðslu um meðvirkni
Viðtalsþjónusta
Fjölskyldumeðferð
Fjölskyldumeðferð tekur fjórar vikur og er haldin á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00 til 18.00. Að lokinni fjölskyldumeðferð geta þátttakendur nýtt sér stuðningshóp sem hittist vikulega í Von, Efstaleiti 7.
Í fjölskyldumeðferð er leitast við að auka þekkingu aðstandenda á fíknsjúkdómnum, einkennum hans og birtingarmyndum og áhrifum hans á alla þá sem búa í návígi við áfengis- og vímuefnasjúkling. Reynt er að aðstoða þátttakendur við að hrinda af stað breytingum til bóta innan fjölskyldunnar.
Eftirfarandi erindi eru hluti af fjölskyldumeðferð:
- Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn
- Meðvirkni og hvernig hún breytir fjölskyldunni
- Meðvirkni og hvernig hún breytir einstaklingnum
- Stuðningur sem gerir ástandið verra
- Sjálfsvirðing
- Þróun batans – aðstandandi vs. fíkill – (gestir velkomnir)
- Sameiginlegur bati allra í fjölskyldunni
Síðasta skipti fjölskyldumeðferðarinnar er haldin stutt kynning á starfi Al-Anon.