Foreldrafærninámskeið í Von-30.mars

Event Date:
30.03.2023
Event Time:
16:10
Event Location:
SÁÁ Von
Næsta foreldrafærninámskeið mun fara af stað fimmtudaginn 30.mars. Námskeiðið er haldið í göngudeild SÁÁ, Efstaleiti 7 og samanstendur af fræðslu og jafningjastuðning. Námskeiðið telur 8 skipti og verður haldið á fimmtudögum frá 16:10-19:00. Sálfræðingarnir Þóra B. Ingólfsdóttir og Katrín E. Jónsdóttir hafa umsjón með námskeiðinu.
Þar sem tvö skipti námskeiðs lenda á frídegi verður námskeiðið haldið á þriðjudegi þær vikur.
Það sem fjallað er um á námskeiðinu er eftirfarandi:
- Fíknsjúkdómurinn og heilaþroski ungmenna
- Hegðun ungmenna með fíknivanda og líðan og viðbrögð fjölskyldu
- Sjálfsrækt
- Hvað er áhugahvöt og hvernig er hægt að hafa áhrif á áhuga til breytinga
- Að styrkja æskilega hegðun og draga úr óæskilegri hegðun
- Farsæl samskipti
- Að setja mörk
- Bataferlið
Heildarverð námskeiðs eru 50.000kr fyrir einstakling og 75.000kr fyrir par. Greiða þarf skráningargjald, 10.000kr fyrir einstakling og 15.000kr fyrir par áður en námskeið hefst.
Innifalið í verði er handbók sem inniheldur ítarlegar upplýsingar um allt sem farið er yfir á námskeiðinu.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið foreldrar@saa.is með fullu nafni, kennitölu, tölvupóst og símanúmeri hjá þeim er hyggjast taka þátt. Einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í 530-7600.
Ef það vakna spurningar endilega hafðu samband.
Bestu kveðjur
Fjölskylduteymið