placeholder

Fræðsla fyrir foreldra og forráðamenn í göngudeild SÁÁ

Nýjung – fræðslukvöld fyrir foreldra:

Hvernig tala ég við barnið mitt um fíkn í fjölskyldunni?

Mánudaginn 27. febrúar n.k. verður hópfræðsla fyrir forráðamenn barna sem eiga foreldri eða annan náinn aðstandanda með fíknsjúkdóm.

Fræðslan byggir á 15 ára reynslu SÁÁ af því að bjóða upp á sálfræðiþjónustu fyrir börn fólks með fíknisjúkdóm.

Þeir sem mæta á fræðslukvöldið fá útprentað efni sem þeir geta nýtt sér og kynnt fyrir börnunum.

Markmið fræðslunnar:

  • Þátttakendur öðlist færni í að ræða um fíknsjúkdóminn við börnin sín.
  • Draga úr ráðaleysi og óöryggi sem getur fylgt aðstæðunum.
  • Auka lífsgæði og líðan þeirra sem búa við fíknsjúkdóm í fjölskyldunni.

Skráning í síma 530-7600

Copy of Meðferð við spilafíkn Akureyri (Facebook Post)