Málþing SÁÁ
SÁÁ stendur fyrir málþingi dagana 4. og 5. nóvember næstkomandi á Hilton Nordica, í samvinnu við Heilbrigðisráðuneytið, Krýsuvíkursamtökin, Samhjálp og Fíknigeðdeild LSH. Fulltrúar Embættis landlæknis, Sjúkratrygginga Íslands, Háskólans á Akureyri og Rekovy flytja lykilerindi á málþinginu.
Yfirskrift málþingsins er "Gæði og árangur í meðferðarstarfi". Málþingið stendur yfir frá kl. 08:30 til 16:00 á Hilton Nordica í sal A.
Streymi á málþingið: fyrir mánudag og fyrir þriðjudag
Málþing SÁÁ 2022 sem fjallaði um "Samstarf til árangurs" heppnaðist verulega vel og opnaði á betri samskipti og kveikti á ferli samskipta og samstars sem þegar hefur komið skjólstæðingum okkar vel. Þetta ferli mun auðvitað halda áfram en um leið þurfa allir aðilar að koma að umræðunni um hvernig ætlum við að mæla árangur og gæði í meðferðarstarfi. Inn í þá umræðu þarf að taka þætti eins og samanburð milli aðila, verkaskiptingu og síðast en ekki síst hvaða skilning höfum við á bata frá fíknsjúkdómi. Málþingið 2024 "Gæði og árangur í meðferð" tekur á þessum þáttum og vonandi fleiru.
Eftir hádegi þriðjudaginn 5.nóvember er fulltrúum allra flokka sem bjóða fram til Alþingis boðið að sitja pallborð þar sem rætt verður um viðhorf og væntingar frambjóðenda til áfengis-og vímuefnameðferðar, endurhæfingar, forvarna og skaðaminnkunnar.