Spurt og svarað
Hvernig geri ég beiðni um innlögn á Sjúkrahúsið Vog?
Hringir í síma 530-7600, skrifstofan á Vogi er opin virka daga kl.08:00-12:00 og kl.13:00-16:00.
Hverjir aðrir geta gert beiðni um innlögn?
Heimilislæknir/læknir/félagsráðgjafi/barnavernd o.fl. geta sent tilvísun eða haft samband og þá er gerð beiðni um innlögn. Einnig getur fjölskylda/aðstandendur hringt og gert beiðni um innlögn.
Hvað get ég gert ef ég á nú þegar beiðni um innlögn?
Ef þú bíður innlagnar eða óskar eftir annarri aðstoð, er hægt að leita á göngudeildir SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri í síma 530-7600. Þar er hægt að panta viðtal á staðnum eða í fjarþjónustu. Einnig eru meðferðarúrræði í göngudeildum sem geta komið í stað innlagnar á Sjúkrahúsið Vog.
Hvað getur biðtíminn("biðlistinn")verið langur eftir innlögn á Sjúkrahúsið Vog?
Í hverjum mánuði berast að meðaltali um 230 beiðnir um innlögn á Vog.
Meðalbiðtími hjá þeim sem leggjast inn var 72 dagar árið 2022.
Við innköllun gilda eftirfarandi leiðbeiningar um forgangsröðun beiðna:
- Þeir sem hafa ekki verið áður á sjúkrahúsinu Vogi, fá strax við gerð beiðar, næsta lausa tíma í innlögn.
- Endurkomu einstaklingar sem ekki hafa verið á sjúkrahúsinu Vogi síðustu 8-10 ár, fá strax við gerð beiðnar, næsta lausa tíma í innlögn.
- Ungmenni 25 ára og yngri eru alla jafna í forgangi og fá strax innlagnardag. Markmiðið er innan 10 daga, en stýrist af innlagnarteymi Ungmennameðferðar
- Þverfaglegur innlagnarfundur tekur afstöðu til beiðna um flýtiinnlagnir sem koma m.a vegna barnaverndarmála, líkamlegra veikinda, samhengis við aðrar sjúkrastofnanir eða annarra velferðarmála.
Nánari greiningu má sjá í Gæðauppgjöri 2022
Hvað er meðferðin á Sjúkrahúsinu Vogi löng og er einhver eftirmeðferð?
Meðferðin á Vogi er um 10 dagar og inniliggjandi eftirmeðferð á Vík er 28 dagar, einnig eru mislöng meðferðarúrræði í göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri.
Hvert get ég leitað annað vegna vanda af fíknsjúkdómi?
Aðstoð vegna vanda af fíknsjúkdómi er að finna hjá heilsugæslunni, hjá velferðarsviði sveitarfélaga (félagsráðgjafar), einnig er fíknimeðferð á fíknigeðdeild Landspítalans og á bráðamóttöku geðdeildar, sími 543-1000.
Hvar er Vogur?
Sjúkrahúsið Vogur er staðsett að Stórhöfða 45, 110 Reykjavík.
Hvað kostar að koma í meðferð?
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við meðferð sjúkratryggðra í samræmi við gildandi þjónustusamninga við SÁÁ. Hægt er að fá nánari upplýsingar um greiðsluþátttöku og gjaldskrár í síma 530 7600
Hvað á ég að hafa með mér?
Gátlisti fyrir sjúkrahúsið Vog
Gátlisti fyrir meðferðarstöðina Vík
Sjá einnig algengar spurningar barna og unglinga.