Stefnur SÁÁ
Stefnur SÁÁ
SÁÁ hlítir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem tóku gildi þann 15. júlí 2018. Umrædd lög voru sett til innleiðingar og lögfestingar á almennu persónuverndarreglugerðinni (REGLUGERÐ EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS (ESB) 2016/679, frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB).
Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um hvaða gögnum SÁÁ safnar, hvernig unnið er með slík gögn, hverjir hafa aðgang að gögnunum og hvernig þú getur nálgast frekari upplýsingar um persónuverndarmálefni SÁÁ.

Þær persónuupplýsingar sem SÁÁ aflar eru meðal annars notaðar til að uppfylla lagaskyldu sem hvílir á ábyrgðaraðila, svo sem um skráningu heilsufarsupplýsinga í sjúkraskrár, um veitingu tiltekinnar þjónustu til sjúklinga og annarra einstaklinga, til að uppfylla kröfur vinnumarkaðsins gagnvart starfsfólki sínu og viðskiptavinum.
Upplýsingum er einnig aflað í þeim tilgangi að standa við gerða samninga við einstaklinga, svo sem ráðningarsamninga við starfsfólk og félags- og styrktaraðila.
SÁÁ kappkostar við að bæta öryggi og lífskjör skjólstæðinga og í þeim tilgangi er vinnsla persónuupplýsinga oft nauðsynleg. SÁÁ leggur áherslu á að upplýsa alla hlutaðeigandi um vinnslu persónuupplýsinga og afla upplýsts samþykkis þeirra í þeim tilvikum sem það á við.
SÁÁ kann einnig að safna og vinna með upplýsingar sem einstaklingar kjósa að láta félaginu í té. Þetta geta til dæmis verið bréfaskrif með ábendingum eða athugasemdum frá sjúklingum, félags- og styrktaraðilum eða öðrum viðskiptavinum eða upplýsingar sem kunna að berast SÁÁ vegna starfsemi þeirra, þ.m.t. meginstarfsemi sem felst í þjónustu við sjúklinga og viðskiptavini þ.m.t. heilbrigðisþjónustu.
Dæmi um upplýsingar sem SÁÁ vinnur um einstaklinga í ofangreindum tilgangi:
- Almennar upplýsingar; svo sem nafn og heimilisfang.
- Samskiptaupplýsingar; svo sem símanúmer og netföng.
- Víðtækar heilsufarsupplýsingar.
- Færni- og heilsumat.
- Upplýsingar um menntun og starfsferil.
- Stéttarfélagsaðild.
- Lífeyrissjóðsaðild.
- Launa- og kjaramál.
- Veikinda- og orlofsréttindi og nýting þeirra.
- Reikningsnúmer.
- Upplýsingar um aðstandendur; svo sem nöfn, símanúmer og netföng.
Viðeigandi starfsmenn og stjórnendur SÁÁ hafa aðgang að þeim gögnum sem safnað er um skráða einstaklinga. Samábyrgðaraðilar, eins og t.d. sjálfstætt starfandi læknar, hafa einnig aðgang að tilteknum gögnum. Þá þurfa vinnsluaðilar SÁÁ að hafa aðgang að ákveðnum gögnum, það geta verið upplýsingatæknifyrirtæki, lyfjaþjónustur, bókhaldsþjónustur o.fl. Ennfremur er SÁÁ skylt að skila tilteknum upplýsingum til ríkisstofnana, svo sem embætti landlæknis, Sjúkratrygginga Íslands, Ríkisskattstjóra o.fl.
SÁÁ nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þeim var aflað fyrir.
SÁÁ leitast við að vernda persónuupplýsingar með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum. Dæmi um slíkar ráðstafanir eru aðgangsstýringar að kerfum, skýrar verklagsreglur og þjálfun starfsfólks.
SÁÁ notar svokallaðar vafrakökur / vefmælingartólið til mælinga á vefsvæðum SÁÁ. Vafrakökur eru smáar textaskrár sem eru geymdar á tölvu þinni eða snjalltæki. Við heimsókn á vefsíðu SÁÁ eru skráðar upplýsingar um tíma, dagsetningu, leitarorð, frá hvaða vef er komið, gerð vafra, gerð stýrikerfis o.fl.. Upplýsingarnar eru notaðar við endurbætur á vef SÁÁ og við þróun hans, m.a. til að gera hann skilvirkari og bæta upplifun notandans. Upplýsingarnar eru ekki seldar þriðja aðila.
SÁÁ hefur tilnefnt persónuverndarfulltrúa sem mun hafa umsjón og eftirlit með persónuverndarmálum heimilisins. Óskir þú eftir frekari upplýsingum um persónuverndarstefnu þessa eða hvernig SÁÁ vinnur með persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband við persónuverndarfulltrúa. Samskiptaupplýsingar hans er að finna hér að neðan:
Persónuverndarfulltrúi SÁÁ:
Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir
personuvernd@samtok.is
Sími:
Persónuverndarstefna þessi er endurskoðuð reglulega og kann að vera uppfærð eða taka breytingum í samræmi við breytingar á lögum eða reglugerðum eða vegna breytts verklags um vinnslu persónuupplýsinga innan SÁÁ
Persónuverndarstefna þessi var samþykkt af framkvæmdastjórn SÁÁ.