Göngudeildin Von
Efstaleiti 7 í Reykjavík
Göngudeild SÁÁ í Reykjavík
Fjölbreytt starfsemi í þágu áfengis- og vímuefnasjúklinga og fjölskyldna þeirra fer fram á göngudeild SÁÁ í Reykjavík. Hluti áfengis- og vímuefnasjúklinga kemur á göngudeildina til að leita ráðlegginga og greiningar á vanda sínum. Ef niðurstaða greiningarviðtals gefur tilefni til er viðkomandi lagður inn á sjúkrahúsið Vog við fyrsta tækifæri og þá hefst hefðbundin áfengis- og vímuefnameðferð. Oft er hins vegar hægt að leysa vanda fólk án þess að til innritunar á Vog þurfi að koma.
0
KOMUR 2019
0
EINSTAKLINGAR 2019
0
VIÐTÖL Á ÁRI
0
FJÖLDI VIRKAN DAG
Viðtalsþjónusta
Viðtalsþjónusta við ráðgjafa á göngudeild er veitt alla daga, bæði fyrir fólk með fíknsjúkdóm og aðstandendur.
Dagmeðferð
Hægt er að sækja dagmeðferð á göngudeild í Reykjavík. Dagmeðferð hentar þeim sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu, búa við góðar félagslegar aðstæður og góða líkamlega heilsu.
Eftirfylgni og stuðningur
Að lokinni meðferð á Sjúkrahúsinu Vogi og/eða inniliggjandi eftirmeðferð á Vík er boðið upp á áframhaldandi meðferð á göngudeildum SÁÁ í 12 mánuði. Mismunandi hópar fá mismunandi úrræði. Stuðningshópur er einnig í boði alla daga.
Fjölskyldumeðferð
Fjölskyldumeðferð er fyrir aðstandendur fólks með fíknsjúkdóm, að henni lokinni geta þátttakendur nýtt sér vikulega eftirfylgni á göngudeild.
Lesa meira um fjölskyldumeðferð
Lesa meira um fjölskyldumeðferð
Sálfræðiþjónusta barna
Í göngudeildinni í Reykjavík, er veitt sálfræðiþjónusta fyrir börn á aldrinum 8-18 ára sem eru aðstandendur fólks með fíknsjúkdóm. Meðferðin er sérhæft inngrip sálfræðings í 8 viðtölum.
Lesa meira um sálfræðiþjónustu barna
Lesa meira um sálfræðiþjónustu barna
Foreldrahópur og fræðsla
Vikulega er opinn stuðningshópur með ráðgjafa og fræðslufyrirlestrar fyrir aðstandendur ungs fólks með fíknsjúkdóm.
Lesa meira um foreldrafræðslu
Lesa meira um foreldrafræðslu
U-hópur (ungmennameðferð)
Vikulega er opinn meðferðarhópur með ráðgjafa og sálfræðingi fyrir ungt fólk með fíknsjúkdóm. Hópurinn hittist á miðvikudögum kl. 17.00 í Von, Efstaleiti 7.
Meðferð fyrir fólk með spilafíkn
Fólk með spilafíkn og aðstandendur þeirra geta fengið einstaklingsviðtöl við ráðgjafa. Einnig er boðið upp á helgarmeðferð við spilafíkn.
Lesa meira um meðferð við spilafíkn
Lesa meira um meðferð við spilafíkn
Opin fyrirlestraröð fyrir alla
Boðið er upp á fyrirlestra í göngudeildinni í Reykjavík fjóra daga vikunnar kl. 13.00. Fyrirlestrarnir eru í boði fyrir alla sem vilja afla sér þekkingar um fíknsjúkdóminn.
Opinn kynningarfundur
Opinn kynningarfundur er haldinn alla miðvikudaga kl. 16.00 þar sem úrræði SÁÁ eru kynnt.

Stórhöfða 45
110 Reykjavík
Sími: 530 7600
162 Kjalarnes
Sími: 530-7600
Fax: 566-8230
Vaktsími kvennameðferðar: 530 7640
Vaktsími karlameðferðar: 530 7690
Hofsbót 4
600 Akureyri
Símar: 530 7600, 462 7611, 824 7609
Valgerður Rúnarsdóttir
Framkvæmdastjóri lækninga
Sérfræðingur í lyflækningum og fíknlækningum
Þóra Björnsdóttir
Hjúkrunarfræðingur
dr. Ingunn Hansdóttir
Sálfræðingur
Páll Geir Bjarnason
Torfi Hjaltason
Karl S. Gunnarsson