01. febrúar 2024
Fræðsluerindi - Að tala við börn um fíknsjúkdóminn í fjölskyldunni
Þriðjudaginn 13. febrúar verður fræðsluerindi í Göngudeild SÁÁ Von, Efstaleiti 7 frá kl. 16:30 - 18:30
Silja Jónsdóttir sálfræðingur í Barnaþjónustu SÁÁ mun flytja fræðslu fyrir foreldra og aðra aðstandendur og stýra umræðum um hvernig eigi að tala við börn um fíknsjúkdóminn í fjölskyldunni.
Dagsetningar sem koma til greina:
- Þriðjudaginn 13. febrúar
- Þriðjudaginn 12. mars
- Þriðjudaginn 9. apríl
- Þriðjudaginn 14. maí
Verð fyrir einstakling er 6.000 kr.- og 9.000 kr.- fyrir par.
Skráning á barn@saa.is og í síma 530-7600.