Fara í efni
14. ágúst 2024

Hlaupaviðburður í Sportís

Næstkomandi fimmtudag frá kl. 16:00 - 18:00 verður hlaupaviðburður hjá okkur í Sportís, Skeifunni 11.

Sportís mun bjóða upp á tilboð á hlaupaskóm, hlaupafatnaði/vörum og kynna hlaupagelin sín.

Við munum vera með hlaupabolinn okkar þarna, en í ár erum við að leyfa fólki að velja númer aftaná bolnum sínum sem merkir t.d. hvað mörg ár þau eru búin að vera edrú. En svo má auðvitað vera bara með uppáhaldstöluna sína.

Það er auðvitað öllum velkomið að koma hvort sem þú ert að fara að hlaupa eða vera í hvatningarliðinu.

Við erum komin með 20 hlaupara í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem verður þann 24. ágúst ??
TAKK fyrir að hlaupa fyrir okkur. Það er ekki hægt að segja með orðum hversu þakklát við erum. Þið eruð snillingar.
Takk allir sem hafa heitið á hlauparana okkar. Án ykkar væri þetta ekki möguleiki.